18.10.04

25 atriði sem sýna fram á að þú sért orðin/n fullorðin/n

Ég fékk þennan lista lánaðan af heimasíðunni hennar Írisar, systur Bjögga.

------------------------------------------------

1.Pottaplönturnar þínar eru á lífi og þú getur ekki reykt neina þeirra.

2.Þú gefur þér tíma til að taka af þér úrið áður en þú ferð að stunda kynlíf.

3.Þú geymir meiri mat en bjór ísskápnum.

4.Klukkan sex að morgni er fótaferðatími en ekki háttatími.

5.Þú heyrir uppáhaldslagið þitt í matvöruverslun Hagkaups.

6.Þú fylgist með veðurfréttum.

7.Vinir þínir giftast og skilja í staðinn fyrir að byrja og hætta saman.

8.Sumarfríið þitt styttist úr þremur mánuðum í þrjár vikur.

9.Bolur og gallabuxur eru ekki lengur spariklæðnaður.

10.Það ert þú sem hringir á lögregluna til að kvarta yfir hávaða í nágrönnum.

11.Eldri ættingjar hætta að segja kynlífsbrandara nálægt þér.

12.Þú hefur ekki hugmynd um hvenær pizzustaðir loka á kvöldin.

13.Bílatryggingarnar lækka en afborganir af bílalánum hækka.

14.Þú ert farin að borða salöt sem aðalrétt.

15.Þú færð bakverk ef þú sefur í sófanum.

16.Þú vaknar fyrir kl. 9.00 á sunnudögum “af því það er svo hressandi”

17.Út að borða og bíó er að fara út að skemmta sér, ekki bara byrjun á góðu kvöldi.

18.Þú verður slæmur í maganum, ekki saddur/södd ef þú færð þér heila pizzu.

19.Þú ferð í apótekið til að fá þér íbúfen, ekki til að kaupa smokka eða þungunarpróf.

20.Vín undir níuhundruð kalli er ekki lengur “ágætis kaup”

21.Þú borðar morgunverð á morgunverðartíma.

22.“Ég get drukkið eins og ég var vanur” kemur í staðinn fyrir “Ég ætla aldrei aftur að drekkka svona mikið”

23. 90% af tíma þínum fyrir framan tölvuna fer í raunverulega vinnu.

24.Þú drekkur ekki lengur heima til að spara pening áður en þú ferð á bari.

25.Þú lest allan þennan lista og leitar í örvæntingu að einhverju sem á ekki við þig.